Velkomnar!

Ávarp Kolbrúnar Halldórsdóttur, formanns Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra

Kæru söngsystur og aðrir gestir.

Ég heiti Kolbrún, ég er formaður Gígjunnar og er kórkona í Kvennakór Reykjavíkur þar sem ég syng 1. sópran.

Ég vil, fyrir hönd stjórnar Gígjunnar, bjóða ykkur allar hjartanlega velkomnar hingað í Reykjanesbæ á þetta tólfta landsmót Gígjunnar. Að þessu sinni er það Kvennakór Suðurnesja sem eru gestgjafar og er það í annað sinn sem þær halda landsmót, síðast árið 2002. Sérstaklega vil ég bjóða velkomnar Kvennakórinn Hrynjanda en þær eru að koma á sitt fyrsta landsmót af vonandi mörgum. Einnig vil ég bjóða velkomnar allar þær konur sem eru að taka þátt í landsmóti Gígjunnar í fyrsta sinn.

Rannsóknir hafa sýnt að það að syngja getur dregið úr kvíða og streitu, bætt skap og aukið vellíðan, aukið sjálfstraust og sjálfsálit. Það að syngja í kvennakór er eitthvað alveg einstakt, að tilheyra hópi kvenna með mismunandi bakgrunn sem vinna að sameiginlegu markmiði, þegar kórinn skilar erfiðu verki eða lagi þar sem er búið að æfa takt 35 sirka hundrað þúsund sinnum bara af því að hljómurinn er svo fáránlega erfiður.. að anda saman. Að anda samt alls ekki allar á sama tíma, að hlusta vel, að treysta, að fylgja, að skapa saman. Upplifa systralagið og kvennakraftinn, vináttuna og að eiga baklandið í kórsystrunum...
Hugsið ykkur hvað við erum heppnar.

Kæru kórkonur, ég vona að þið njótið samverunnar hér um helgina, að þið lærið af kórstjórunum, kynnist nýjum söngsystrum, að þið fáið nýjar hugmyndir, að þið syngið af öllu hjarta - bæði uppi á sviði og við ljósastaurana og að þið fáið gæsahúð oft.

Skemmtið ykkur vel og takk fyrir mig.