Heklurnar

  • Heklurnar eru jákvæður og skemmtilegur kvennakór sem stofnaður var í Mosfellsbæ árið 2003. Undirtitill kórsins er „kórinn sem bakar ekki“ og í þeim anda stunda Heklurnar ekki fjáröflun í formi kökubasara eða farandsölu heldur einbeita sér að söng og skemmtilegri samveru. Kórinn skipa konur úr Mosfellsbæ og nágrenni á höfuðborgarsvæðinu.

    Æfingar eru í Lágafellskóla á þriðjudögum frá kl. 19:30–21:30. Lagavalið hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt og ýmis þema ráðið ferðinni. Kórkonur leggja metnað sinn í að læra nótur og texta utanbókar fyrir vortónleika og alla aðra tónleika.

    Heklurnar hafa hingað til tekið þátt í Landsmóti kvennakóra í fjögur skipti og hlökkum við til þess að mæta á Landsmót 2026 í Reykjanesbæ.

    Stjórnandi: Svava Kristín Ingólfsdóttir

    Meðleikari á vortónleikum 2026: Mariia Ishchenko