Velkomnar!
Ávarp Guðlaugar Maríu Lewis, menningarfulltrúa Reykjanesbæjar
Kæru gestir.
Fyrir hönd Reykjanesbæjar býð ég ykkur hjartanlega velkomin til bæjarins á landsmót kvennakóra 2026.
Þegar mér var boðið að ávarpa ykkur brá ég á það ráð að líta rétt sem snöggvast á vefsíðu mótsins. Fyrr en varði var ég eiginlega búin að lesa síðuna í gegn og verð að játa að ég skemmti mér konunglega.
Það sem varð á vegi mínum var fjársjóður af sögum. Hér er t.d. kór sem hefur sungið með Rottweilerhundum, kór sem bakar ekki, annar sem hefur sungið á öllum einbreiðum brúm sýslunnar og kór sem brá á það ráð að vísa eina karlkyns meðlimnum úr kórnum á sínum tíma til að komast í þennan félagsskap hér.
Það yljaði mér líka persónulega um hjartarætur að rekast á nafn Ágotu Joó í stjórnendahópnum. Það minnti mig á elsku ömmu mína heitna sem söng í kór eldri borgara hér í Reykjanesbæ undir stjórn hennar. Amma talaði af einstakri virðingu um Ágotu sem segir okkur hvernig kórastarf tengir fólk saman, jafnvel á milli kynslóða.
Fyrir nokkrum árum hlýddi ég á fyrirlestur um rannsóknir finnska taugalæknisins Markku T. Hyyppä sem rannsakað hefur heilsu og lífslíkur fólks og það hvers vegna fólk í sumum samfélögum er langlífara en í öðrum.
Ein af niðurstöðum hans var sú að fólk sem tekur virkan þátt í menningar- og félagsstarfi virðist almennt lifa lengur en þeir sem standa utan þess. Hann gekk svo langt að nefna eina bóka sinna Menning lengir lífið.
Ég veit ekki hvort það eru æfingarnar, vináttan, hláturinn eða kræsingarnar í kaffipásunni sem skýra þetta. En þegar ég las um þessa tólf kóra sem eru þátttakendur á landsmótinu datt mér í hug að hér væri líklega saman kominn hópur sem yrði nokkuð langlífur, því þegar maður les sögurnar ykkar er auðvelt að skilja hvað Markku T. Hyyppä á við. Það sem ég sá voru ekki bara kórar eða sönghópar. Ég skynjaði vináttu, samveru, húmor, hefðir og samfélög sem hafa byggst upp í kringum sönginn.
Kannski er þetta líka ástæða þess að Kvennakór Suðurnesja hefur lifað og dafnað allt frá árinu 1968 og er í dag elsti starfandi kvennakór landsins. Það er sannarlega afrek.
En það er ekki síður afrek að taka að sér hlutverk gestgjafa á landsmóti sem þessu. Ég hef fylgst með undirbúningnum úr fjarska og séð hversu umfangsmikið skipulagið er. Fyrir hönd Reykjanesbæjar vil ég því færa Kvennakór Suðurnesja sérstakar þakkir fyrir þá vinnu, þann metnað og þá gleði sem þær hafa lagt í undirbúninginn.
Þökk sé þeim fáum við tækifæri til að taka á móti ykkur öllum og sýna ykkur bæinn okkar sem státar af öflugu menningarlífi, ríkri tónlistarhefð og samfélagi sem tekur vel á móti fólki.
Ég vona að þið njótið hverrar stundar, eignist nýja vini, styrkið gömul tengsl og farið heim með fallegar minningar úr Reykjanesbæ.
En fyrst og fremst vona ég að þið njótið söngsins. Því það er jú hann sem hefur leitt ykkur hingað.
Enn og aftur, hjartanlega velkomnar til Reykjanesbæjar, til hamingju Kvennakór Suðurnesja með glæsilegt framtak og gangi ykkur öllum sem allra best á landsmótinu.