Little talks

Höfundar lags og texta

Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson

Útsetning

Heiðar Sigurðsson

Little Talks var samið af Suðurnesjamönnunum Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttur og Ragnari Þórhallssyni úr hljómsveitinni Of Monsters and Men. Sveitin gaf lagið út árið 2011 og sló það í gegn hérlendis og ekki síst utan landsteinanna. Heiðar Sigurðsson útsetti lagið sérstaklega fyrir 50 ára afmæli Kvennakórs Suðurnesja og er það mjög skemmtileg og lífleg útsetning fyrir kvennakór.