Hvað er í bíó ?
Heklurnar, Kvennakór Ísafjarðar og Kvennakórinn Ymur
I´m not that girl úr Wicked
Lag og texti:Stephen Schwartz Útsetning: Audrey Snyder
Skyfall úr James Bond
Lag og texti: Adele Adkins og Paul Epworth Útsetning: Paul Langford
Never enough úr The greatest showman
Lag og texti: B. Pasek og J. Paul Útsetning: Mark Brymer
Smiðjustjóri
Dagný Þórunn Jónsdóttir
Dagný Þórunn Jónsdóttir lauk 8. stigs prófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1993. Að því loknu lá leiðin til Bretlands þar sem hún stundaði söngnám í 4 ár. Dagný kom aftur heim og lauk kennaranámi í söng og síðar meistaranámi í söngkennslu við Listaháskóla Íslands. Hún hefur starfað sem söngkennari frá árinu 2001 og kennir núna í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og við Tónlistarskólann í Garði auk þess að starfa sem deildarstjóri söngdeildar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Dagný hefur stjórnað Kvennakór Suðurnesja frá árinu 2004. Einnig stjórnaði hún Heklunum frá 2017 til 2025.
Píanóleikari
Geirþrúður Fanney Bogadóttir
Geirþrúður Fanney Bogadóttir er Rangæingur, fædd að Hlíðarbóli í Fljótshlíð. Hún hóf nám í orgelleik hjá Kjartani Jóhannessyni, en stundaði síðar nám við Tónlistarskóla Árnesinga, á orgel, píanó og klarinett. Hún hóf nám við Tónlistarskólann í Reykjavík 15 ára gömul og útskrifaðist þaðan með tónmenntakennarapróf. Eftir það stundaði hún nám í píanóleik og hefur einnig sótt fjölda námskeiða. Geirþrúður er tónlistarkennari við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Geirþrúður hefur verið meðleikari Kvennakórs Suðurnesja frá 2003, en þó má segja að samstarfið hafi byrjað á landsmóti kvennakóra í Reykjanesbæ 2002.