Gospelgyðjur

Kvennakór Reykjavíkur og Léttsveit Reykjavíkur

Total praise

Lag og texti: Richard Smallwood
Útsetning: Rafn Hlíðkvist

(You make me feel like) A Natural woman

Lag og texti: Gerry Goffin, Carole King og Jerry Wexler
Útsetning: Rafn Hlíðkvist

Fallin' - Alicia Keys

Lag og texti: Alicia Keys
Útsetning: Rafn Hlíðkvist

Smiðjustjóri

Rafn Hlíðkvist

Rafn Hlíðkvist er tónlistarstjóri og organisti Njarðvíkursóknar og hefur um árabil starfað sem kórstjóri, söngvari, útsetjari og hljóðfæraleikari. Hann hefur komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði kirkjutónlistar, kóratónlistar og gospeltónlistar og starfað með listamönnum og kórum víða um land.

Rafn hefur stjórnað fjölmörgum kórum og sönghópum, þar á meðal Vox Felix og Gospelkór Fíladelfíu, auk þess að koma að ýmsum tónlistarverkefnum sem stjórnandi, útsetjari og flytjandi. Í starfi sínu hefur hann lagt áherslu á lifandi tónlistarflutning, sterkan samhljóm og að skapa umhverfi þar sem metnaður og sönggleði fara saman.

Samhliða kórastarfi hefur Rafn starfað við fjölbreytt tónlistarverkefni, bæði í helgihaldi og tónleikahaldi. Sem tónlistarstjóri Njarðvíkursóknar leiðir hann öflugt tónlistarstarf og kemur reglulega að uppfærslu tónlistarviðburða af ýmsum toga.

Gospeltónlist hefur skipað sérstakan sess í starfi Rafns. Þar sækir hann innblástur í kraftmikinn söng, ríkar sönghefðir og þá samkennd sem myndast þegar hópur fólks syngur af innlifun og einlægni. Í gospelsmiðjunni á landsmóti íslenskra kvennakóra verður lögð áhersla á rythma, túlkun, samhljóm og sönggleði með það að markmiði að skapa kraftmikla og eftirminnilega tónlistarupplifun fyrir alla þátttakendur.