Léttsveit Reykjavíkur
Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur blés til fyrstu kóræfingar haustið 1995 og fagnaði því 30 ára afmæli sínu á síðasta ári. Kórinn telur nú um stundir 96 kórkonur en um helmingur þeirra tekur þátt í landsmótinu. Stjórnandi er Gísli Magna og meðleikari Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Léttsveitin leggur metnað sinn í að flytja skemmtilega og metnaðarfulla en þó létta tónlist, í krefjandi en fallegum radd- eða útsetningum, sem oftast eru í höndum Gísla Magna. Eitt af aðalsmerkjum kórsins er að syngja allt blað- og nótnalaust á tónleikum en kórinn heldur að jafnaði tvenna aðventutónleika og tvenna vortónleika.