Velkomnar!

Ávarp Guðrúnar Karítasar Karlsdóttur, formanns Kvennakórs Suðurnesja

Kæru kvennakórskonur.

Hjartanlega velkomnar á 12. landsmót íslenskra kvennakóra í Reykjanesbæ.

Fyrir þremur árum tók Kvennakór Suðurnesja við keflinu á lokahófi landsmótsins í Reykjavík og finnst okkur það vera alveg með ólíkindum að nú séum við komnar á þann stað að vera að taka á móti ykkur, tíminn flýgur trúðu mér.

Undirbúningurinn var langur og kostaði oft bókstaflega svita og blóð en aldrei tár enda mikil gleði fólgin í því að halda þessi landsmót þar sem gleðin, söngurinn og vináttan er ómetanleg. Við í KKS erum að halda mótið í annað skiptið, síðast var það hér árið 2002 og eru því 24 ár síðan, skemmtilegt er að segja frá því að tvær af okkur í landsmótsnefnd núna unnum að skipulagningu á því móti líka.

Margar okkar hér inni eigum svo mikið af góðum minningum frá fyrri mótum, þar sem mikið var hlegið, sungið og dansað, minningar sem munu lifa með okkur um ókomna tíð. Í kórastarfinu er oft talað um landsmót t.d. manstu þegar þetta var á landsmótinu, okkur langar að syngja lagið sem var á landsmótinu, fyndin atvik sem komu upp o.s.frv. Landsmótin gleymast aldrei.

Þema þessa landsmóts eru eldsumbrotin sem hafa verið á Reykjanesskaganum síðastliðin 5 ár. Þið eigið eftir að sjá vísað í það á mótinu en lokatónleikar mótsins bera einmitt yfirskriftina Eldgyðjur og er texti mótslagsins sem er úr ljóðabók Rutar Gunnarsdóttur heitinnar sem var kórkona í Kvennakór Suðurnesja í takt við það þema. Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður með meiru samdi lag við ljóðið en hann fæddist og bjó lengi hér í Njarðvík.

Við höfum reynt að fá alla þjónustu, mat og skemmtun héðan af Suðurnesjum og tókst það að miklu leyti, þið munuð því fá að sjá og upplifa margt af því besta sem svæðið hefur upp á að bjóða áður en mótinu lýkur.

Það eru margar hendur sem koma að þegar svona mót er uppsett og viljum við þakka öllum sem hafa stutt okkur í undirbúningi mótsins, velvilja frá Reykjanesbæ sem hefur greitt götu okkar að öllu húsnæði sem við notum ásamt fleiru, öllum sem hafa styrkt okkur með fjárframlagi, þeim sem hafa komið að uppsetningu mótsins og þeim sem eru að aðstoða okkur á meðan á mótinu stendur. Einnig viljum við þakka öllu því frábæra tónlistarfólki sem vinnur með okkur á mótinu, við erum einstaklega þakklátar fyrir þeirra aðkomu.

Síðast en ekki síst þökkum við ykkur kæru kórkonur sem eruð nú komnar hingað til að taka þátt í mótinu með okkur, án ykkar væri ekkert mót. Að vera í kvennakór er eins og við vitum allar alveg óendanlega skemmtilegt, nærandi og lærdómsríkt. Þegar við síðan komum saman á landsmóti og sameinumst í fleiri hundruð manna kór til að syngja, þá er það eitthvað annað.

En nú er eftir engu að bíða, byrjum upplifunina, gleðina og sönginn akkúrat núna. Óskum ykkur góðrar skemmtunar og þar með er landsmót íslenskra kvennakóra 2026 formlega sett!

Takk fyrir.