Hljómar frá Keflavík
þrjár perlur í nýjum útsetningum fyrir kvennakór
Kvennakór Hafnarfjarðar, Kvennakór Hornafjarðar og Kvennakórinn Hrynjandi
Er hann birtist
Lag: Gunnar Þórðarson
Texti: Þorsteinn Eggertsson
Útsetning: Arnór Vilbergsson
Bláu augun þín
Lag: Gunnar Þórðarson
Texti: Ólafur Gaukur
Útsetning: Arnór Vilbergsson
Ástarsæla
Lag: Gunnar Þórðarson
Texti: Þorsteinn Eggertsson
Útsetning: Arnór Vilbergsson
Smiðjustjóri
Arnór Vilbergsson
Arnór B. Vilbergsson fæddist í Reykjavík 1975. Hann ólst upp í Keflavík frá fimm ára aldri og byrjaði ungur í tónlistarnámi við Tónlistarskólann í Keflavík. Stundaði hann píanónám hjá Ragnheiði Skúladóttur fyrstu árin en hóf svo orgelnám hjá Steinari Guðmundssyni 1992. Fljótlega fór hann í Tónskóla þjóðkirkjunnar og nam hjá Árna Arinbjarnarsyni organista. Leiðin lá norður til Akureyrar þar sem Arnór nam hjá Birni Steinari Sólbergssyni og þar lauk hann kantorsprófi. Fyrir norðan lék Arnór í flestöllum kirkjum og var lengst af organisti í Hríseyjarprestakalli, eða í 8 ár. Einnig var hann organisti við Akureyrarkirkju og tímabundið við Glerárkirkju. Samhliða því kenndi hann tónmennt á vegum Tónlistarskóla Akureyrar í þau ár sem hann bjó þar.
Arnór stjórnaði Kvennakór Akureyrar í þrjú ár en stjórnar í dag kór Keflavíkurkirkju og Eldey, kór eldri borgara. Hann stjórnaði ungmennakórnum Vox Felix um árabil auk þess sem hann hefur verið tónlistarstjóri við söngvakepppni ungmenna bæði á vegum Verkmenntaskólans á Akureyri og Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Leikhúsið skipar stóran sess í ferli Arnórs en hann hefur verið tónlistarstjóri í Rocky horror, Grease og Honk hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri og í Ástarbréfi, Hversdagslegu kraftaverki og Ævintýri á gönguför með Leikfélagi Akureyrar auk þess sem hann var aðstoðartónlistarstjóri og lék undir í Litlu hryllingsbúðinni hjá Leikfélagi Akureyrar. Þá samdi hann tónlist í uppfærslu Leikfélags Keflavíkur á Rauðhettu árið 2015.
Arnór hefur verið organisti við Keflavíkurkirkju síðan 2008. Hann hefur verið meðleikari hjá gríðarlegum fjölda söngvara og hljóðfæraleikara við hin ýmsu tilefni, trúarleg jafnt sem veraldleg. Þá hefur hann stjórnað metnaðarfullum verkefnum með kór Keflavíkurkirkju, má þar nefna Jólaoratoríu Saints Saens og Requiem eftir Gabriel Fauré sem og verk utan hefðbundins tónleikahalds, U2 messu, Jesus Christ Superstar og Queen messu.