Kona
Kvennakór Reykjavíkur, Kvennakórinn Ljósbrá og Kvennakór Suðurnesja
Spiladósalagið
Lag og texti: Andrea Gylfadóttir
Útsetning: Gísli Magna
Esjan
Lag og texti: Bríet Íris Elfar og Pálmi Ragnar Ásgeirsson
Útsetning: Gísli Magna
Ómissandi fólk
Lag og texti: Magnús Eiríksson
Útsetning: Gísli Magna
Smiðjustjóri
Gísli Magna
Gísli hóf tónlistarnám ungur að árum og lærði bæði á píanó og söng hér heima og erlendis, meðal annars í Hollandi og Danmörku þar sem hann útskrifaðist frá Complete Vocal Institute árið 2010 sem söngkennari.
Hann hefur komið víða við sem söngvari - sungið með fjölmörgum kórum og sönghópum, tekið þátt í uppfærslum Íslensku óperunnar og Borgarleikhússins, sungið þó nokkuð oft bakraddir í Eurovision og komið að fjölda hljóðritana og gaf síðast út plötuna Nóttin og þú árið 2020.
Undanfarin ár hefur Gísli einkum sinnt kórstjórn, söngkennslu, útsetningum og tónsmíðum. Verk hans hafa verið flutt víða um heim og hann hefur meðal annars unnið fyrir danska sjónvarpsstöðina TV2 og jólatónleikana Frostrósir Klassík. Auk þess hefur hann stjórnað kórum í Kaupmannahöfn og London. Hann hefur verið stjórnandi Léttsveitar Reykjavíkur síðan haustið 2012.