Kæru systur
Kvennakór Akureyrar og Senjórítur
Bíllinn mín og ég (Taka takata)
Lag: Al Verlane Ljóð: Þorvaldur Halldórsson og Einar Svavarsson Raddsetning: Vilberg Viggósson
Hver brú (Hey Jude)
Lag: John Lennon & Paul McCartney Texti: Bragi Valdimar Skúlason Útsetning: Deke Sharon
Kæru Systur
Lag og texti: Kjartan Ragnarsson Útsetning: Vilberg Viggósson
Smiðjustjóri
Ágota Joó
Ágota Joó er fædd í Ungverjalandi og útskrifaðist frá Franz Liszt Tónlistarháskólanum í Szeged árið 1988 sem píanókennari, tónfræðakennari og kórstjóri. Hún hefur starfað með kórum um árabil og er þekkt fyrir metnaðarfulla og skapandi nálgun í kórstarfi.
Ágota tók við Kvennakór Reykjavíkur árið 2010 og undir hennar stjórn hefur kórinn tekið þátt í fjölmörgum tónleikum, kórakeppnum og kórviðburðum með góðum árangri. Hún hefur jafnframt stjórnað Senjórítukórnum í tvo áratugi og er kórstjóri Kórs Átthagafélags Strandamanna. Fyrsti kvennakórinn sem hún stjórnaði á Íslandi var Kvennakór Suðurnesja, og það er henni sérstök ánægja og heiður að fá að starfa með kórnum á ný.
Ágota er einn af stofnendum Tónskólans Do Re Mi þar sem hún starfar nú sem aðstoðarskólastjóri og píanókennari. Í starfi sínu leggur hún áherslu á fjölbreytta efnisskrá, nýsköpun og listrænan metnað og vinnur markvisst að því að efla kórmenningu á Íslandi.
Píanóleikari
Vilberg Viggósson
Vilberg Viggósson hóf nám í píanóleik hjá Ragnari H. Ragnar í Tónlistarskóla Ísafjarðar, átta ára gamall. Hann lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Halldóri Haraldssyni 1982 og lokaprófi frá Sweelinck Conservatorium í Amsterdam 1989. Hann stofnaði Tónskólann Do Re Mi haustið 1994 ásamt Ágotu Joó og Ingu Ástu Hafstein og hefur verið skólastjóri skólans síðan. Vilberg stjórnar Mosfellskórnum og er meðleikari hjá Senjórítunum og Kór Átthagafélags Strandamanna.