Kvennakórinn Hrynjandi

Kvennakórinn Hrynjandi samanstendur af kátum söngfuglum sem finnst ekkert skemmtilegra en að syngja og hlæja saman. Kórinn tekur æfingar alvarlega en finnst einnig gaman að halda tónleika, ferðast til útlanda og troða þar upp, syngja í karókí, taka þátt í gjörningum og heilla gesti í miðbænum á aðventu með jólasöngvum.

Hrynjandi var stofnaður árið 2010 af konum sem vildu skapa vettvang til að syngja saman og koma fram. Maríus Sverrisson var fyrsti stjórnandi kórsins og stýrði honum til ársins 2016. Þá tók Jón Svavar Jósepsson við stjórninni en undir hans stjórn lagði kórinn áherslu á íslensk þjóðlög. Efnisskráin innihélt einnig lög frá 16. öld og bandarísk popplög svo óhætt er að segja að lagaval hafi verið fjölbreytt. Árið 2022 tók Berta Dröfn Ómarsdóttir við stjórn kórsins. Síðan þá hefur áhersla kórsins verið á að flytja lög sem eru samin, ort eða útsett af konum. Það er talið að um 250 kórar starfi á Íslandi en Hrynjandi er eini kórinn sem flytur eingöngu lög sem konur hafa samið með einum eða öðrum hætti.

Kórinn hefur lagst í ferðalög og heillað hlustendur á erlendri grundu með þýðum söng. Hrynjandi hefur ferðast til Rómar og söng m.a. í Vatíkaninu, til Berlínar, Tallin og Helsinki. Kórkonur eru ekki af baki dottnar og eru að plotta fleiri ferðalög árið 2027.