Taktur trumbunnar
Lokatónleikar landsmótsins verða haldnir í Stapaskóla 13. júní en það eru sameiginlegir tónleikar kóranna þar sem afrakstur smiðjuvinnu er fluttur. Hápunktur mótsins er síðan þegar allir kórarnir sameinast og syngja saman í lok tónleikanna. Hefð er fyrir því að sérstakt mótslag er samið fyrir hvert landsmót og tengist það því svæði sem mótið er haldið á. Landsmótslagið að þessu sinni er samið af Suðurnesjamanninum Magnúsi Þór Sigmundssyni við texta Rutar Gunnarsdóttur sem er fyrrum kórkona í Kvennakór Suðurnesja en hún lést árið 2006. Lagið verður frumflutt á lokatónleikum mótsins sem bera yfirskriftina "Eldgyðjur" sem var valið í tengslum við eldsumbrotin sem verið hafa á Reykjanesi undanfarin ár og tengist texti landsmótslagsins því þema.
Höfundur lags
Magnús Þór Sigmundsson
Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður fæddist árið 1948 í Ytri-Njarðvík og ólst þar upp. Hann er einn ástsælasti og afkastamesti laga- og textahöfundur íslenskrar tónlistarsögu og spannar ferill hans rúma fimm áratugi. Hann fór snemma að fást við tónlist og hóf ferilinn með hljómsveitinni Nesmönnum á árunum 1966-1969 en fljótlega hófst farsælt samstarf Magnúsar við Jóhann Helgason og hafa þeir starfað saman síðan sem tvíeykið Magnús og Jóhann. Þeir gáfu út plötuna Magnús og Jóhann árið 1972. Síðan lá leið þeirra til Lundúna þar sem þeir gáfu út tónlist undir nöfnunum Pal Brothers og Change, sem bættist síðar liðsauki og varð að hljómsveit.
Magnús hefur sent frá sér ógrynni platna í gegnum árin, hann hefur gert sólóplötur auk þess að gefa út plötur með Jóhanni Helgasyni, Change og mörgum fleiri þekktum tónlistarmönnum, þar á meðal nokkrar barnaplötur.
Á löngum ferli hefur Magnús samið fjölda vinsælla laga sem skipa stóran sess í þjóðarsál Íslendinga og má þar nefna perlur á borð við Ísland er land þitt, Mary Jane, Ást, Blue Jean Queen, Yacketty yak, Álfar, Jörðin sem ég ann, Þar sem hjartað slær og svo mætti lengi telja.
Magnús hélt upp á sjötugsafmæli sitt árið 2018 með tvennum glæsilegum tónleikum í Háskólabíói og heldur áfram að semja og gefa út nýja tónlist.
Höfundur ljóðs
Rut Gunnarsdóttir
Rut Gunnarsdóttir fæddist árið 1951 í Innri-Akraneshreppi og ólst þar upp. Hún flutti til Stokkseyrar árið 1969 og bjó þar mestalla ævina. Hún opnaði veitingastaðinn Við fjöruborðið á Stokkseyri árið 1994, og einnig stofnaði hún ferðaþjónustuna Kajakaferðir á Stokkseyri ásamt börnum sínum árið 1995. Eftir að hún seldi veitingastaðinn flutti hún til Keflavíkur þar sem hún bjó í nokkur ár og söng þá með Kvennakór Suðurnesja.
Rut kom víða við í félagsstörfum, m.a. söng hún með kirkjukórum frá 12 ára aldri og starfaði lengi með Leikfélagi Selfoss. Allt frá unglingsaldri fékkst Rut við að yrkja ljóð og semja lög og gaf út ljóðabókina Orðin sem liggja í loftinu árið 2004 og tók þátt í mörgum ljóðaupplestrum. Hún gaf einnig út geisladiskinn Lífsþrá með eigin lögum og ljóðum. Rut lést árið 2006 eftir baráttu við krabbamein og eftir andlát hennar kom út önnur bók með ljóðum hennar, Bleikt eins og kærleikurinn. Í umsögn um ljóð Rutar sagði m.a. "Ljóð hennar eru í senn kærleiksrík og snörp af visku og gagnrýni".
Rut bjó síðustu ár ævi sinnar í Hveragerði og kynntist þar Magnúsi Þór Sigmundssyni og konu hans, Jennýju Borgedóttur og tókst með þeim góð vinátta. Það var því vel við hæfi að fá Magnús Þór til að semja lag við ljóð Rutar, Takt trumbunnar, fyrir landsmót íslenskra kvennakóra 2026.
Útsetning